Login
 
Barri hf,
Valgerðarstöðum 4, 701 Egilsstöðum

Sími: 471-2371 - Fax: 471-2376
Gsm: 899-4371 - Netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Ný verðskrá undir flipanum VÖRUR

Skógarplöntur og plöntuverkfæri
Sendum plöntur um allt Ísland
auk Færeyja og Grænlands

Barri hf,
Tumastöðum, Fljótshlíð, 
861 Hvolsvöllur
Sími: 481-3171
Gsm 664-4099    Netfang: This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Fréttatilkynning vegna aðalfundar félagsins PDF Print E-mail
Written by Skúli Björnsson   
Thursday, 21 January 2010

Aðalfundur Barra hf var haldinn 14. janúar sl. í kaffistofu félagsins á Valgerðarstöðum 4 í Fellum. 

Hagnaður Barra hf. á rekstrarárinu 1. nóvember 2008 til 31. október 2009 nam kr. 299.463. Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir félagsins kr. 282.271.390 bókfært eigið fé í árslok er kr. 92.022.652 og er eiginfjárhlutfall félagsins 32,6%.
Hreint veltufé frá rekstri var kr. 8.217.071

Vegna sviptinga í efnahagslífi á Íslandi síðla árs 2008 og á árinu 2009 hækkuðu skuldir félagsins mjög verulega, og voru rekstrarhorfur þess slæmar. Í lok reikningsársins var gripið til umtalsverðrar fjárhagslegrar endurskipulagningar á félaginu, einkum með þátttöku Kaupþings banka og Byggðastofnunar. Skuldabréfalán voru afskrifuð og lánum var breytt í hlutafé, en áður hafði hlutafé félagsins verið fært niður um 30% til jöfnunar á tapi. Á nýju rekstrarári, 2009-2010, er stefnt að aukningu hlutafjár, og eru rekstraráætlanir meðal annars byggðar á því að það takist.

Samþykkt var á aðalfundinum að auka hlutafé úr tæplega 82 milljónum í 112 milljónir til að styrkja lausafjárstöðu, til að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins auk þess að ljúka framkvæmdum á Valgerðarstöðum sem varða aðallega vinnuhagræði.

Ræktun fór fram á Valgerðarstöðum í Fellum og Tumastöðum í Fljótshlíð. Sáð var fræi og stungið stikklingum í rúmlega 76 þúsund bakka eða í rúmlega 3,4 milljón hólfa.

Heildarafhending rekstrarársins 2009  varð tæplega 2,5 milljón plöntur sem er minnkun um rúmlega 350 þúsund plöntur frá síðasta ári. Þrátt fyrir þessa minnkun urðu sölutekjur heldur meiri en árið áður.

Á launaskrá komu 34 starfsmenn en á þessum tíma eru 8 starfsmenn fastráðnir á Valgerðarstöðum og tveir starfa á Tumastöðum í Fljótshlíð.

Í aðalstjórn voru kjörnir Björn Ármann Ólafsson formaður, Helgi Gíslason varaformaður, Jóhann Þórhallsson ritari, Jóhann Arnarson og Pétur Grétarsson.

Framkvæmdastjóri er Skúli Björnsson

 
Fundarboð aðalfundar 2009 PDF Print E-mail
Written by Skúli Björnsson   
Saturday, 09 January 2010

Fundarboð til hluthafa

Aðalfundur Barra hf fyrir rekstrarárið 2009

verður haldinn í kaffistofu félagsins á Valgerðarstöðum 4, Fellabæ
fimmtudaginn 14. janúar 2010  kl 20:00.

  • Tillögur frá stjórn,  breytingartillögur á samþykktum félagsins 4. grein um að auka hlutafé í kr 112 milljónir.
  • Ársreikningur og skýrsla endurskoðenda liggur frammi til skoðunar  á skrifstofu félagsins  frá og með 7. janúar 2009.

Dagskrá aðalfundar Barra hf  fyrir árið 2009  

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.  Kynning á fjárhagsáætlun 2010.
  3. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
  4. Breytingar á samþykktum félagsins.
  5. Kosning stjórnar.
  6. Kosning endurskoðenda.
  7. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og varastjórnar.
  8. Önnur mál.

Fyrir hönd stjórnar
Skúli Björnsson framkvæmdastjóri

Last Updated ( Saturday, 09 January 2010 )
 
Jólatré PDF Print E-mail
Written by Skúli Björnsson   
Sunday, 29 November 2009

Í síðustu viku hafa skógarbændur verið að höggva og leggja inn jólatré til Barra hf. Um er að ræða stafafuru 1,2 til 2,5 metrar á hæð. Búið er að selja suður 350 tré sem afhentar verða afhentar í vikunni. jolatre_2_2009.jpg

Unnið er að undirbúningi "Jólakattarins" jólamarkaðar sem Barri hf, Félag skógarbænda á Austurlandi, Skógrækt ríkisins á Hallormsstað ásamt Héraðs- og Austurlandsskógum. Markaðurinn verður haldinn laugardaginn 12. desember n.k. í Gróðurhúsi 1 á Valgerðarstöðum 4 við Fellabæ. jolatre1_2009.jpg

Last Updated ( Sunday, 29 November 2009 )
 
Námskeið í líkanagerð til að meta vindálag PDF Print E-mail
Written by Skúli Björnsson   
Thursday, 01 October 2009

Í dag 1. október var haldið námskeið í gerð líkana til að meta vindálag. Hugmyndin vaknaði eftir vangaveltur Hlyns og Benna hjá Héraðsskógum og Erlu hjá Barra hf fyrir nokkrum vikum. Rúmlega 20 tóku þátt og eða fylgdust með. Þarna voru búin til módel af byggingum á Valgerðarstöðum og Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá. Búin var til renna sem líkönin voru sett í og síðan notuð kolsýra og heitt vatn til að framkalla sýnilegan vind. Sjá má nánar um svona líkön með því að skoða stutt video á heradsskogar.is

vindlkan_a.jpgvindlkan_b.jpg vindlkan_c.jpg

Last Updated ( Thursday, 01 October 2009 )
 
Alþjóðleg ráðstefna um líforku PDF Print E-mail
Written by Skúli Björnsson   
Friday, 14 August 2009

Alþjóðleg ráðstefna um líforku
Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. - 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði.
 
Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP).  Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, Finnar leiða verkefnið.

Ráðstefnan fjallar um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt.  Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Skotlandi, Finnlandi og Svíðþjóð.

Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst.  Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst.
Nemar greiða engin ráðstefnugjöld.

Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
 
Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni:
http://www.graihundurinn.is/  sími: 471-2400

Last Updated ( Friday, 14 August 2009 )
 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 Next > End >>

Results 1 - 10 of 59
Heimsóknir í dag: 5
Heimsóknir alls: 22262

Viðburðir

February 2010 March 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
Week 5 1 2 3 4 5 6
Week 6 7 8 9 10 11 12 13
Week 7 14 15 16 17 18 19 20
Week 8 21 22 23 24 25 26 27
Week 9 28

Næstu viðburðir

Það eru engir viðburðir skráðir.
Birta dagatal

Myndir


 

 

 

 

Fréttaveita